ÖBÍ auglýsir eftir 2 starfsmönnum vegna aðgengisátaks
Öryrkjabandalag Íslands auglýsir eftir tveimur starfsmönnum í tímabundin hlutastörf við átaksverkefni á sviði aðgengismála á höfuðborgarsvæðinu og á landsbyggðinni. Samanlagt er gert ráð fyrir 100% starfshlutfalli sem skiptist á milli starfsmanna eftir samkomulagi. Átaksverkefnið mun standa yfir í sex mánuði. Fatlað fólk/fólk með skerðingar er sérstaklega hvatt til að sækja um.
Ítarleg auglýsing hefur verið birt á vef ÖBÍ ( https://www.obi.is/is/utgafa/frettir/adgengisatak-obi ) og munu auglýsingar jafnframt birtast í blöðum.
The post ÖBÍ auglýsir eftir 2 starfsmönnum vegna aðgengisátaks appeared first on diabetes.