Námskeið fyrir stuðningsfulltrúa (Stuðningsnet sjúklingafélaganna)
Samtök sykursjúkra eru ásamt 14 öðrum sjúklingafélögum á bak við Stuðningsnet sjúklingafélaganna, sem byggir á jafningjastuðningi. Allar upplýsingar eru hér: www.studningsnet.is
Næsta námskeið fyrir þá sem vilja gerast stuðningsfulltrúar verður haldið mánudagana 11. og 18. febrúar næstkomandi.
(ATH! þetta er eitt námskeið sem er skipt á tvö kvöld)
Ef þú hefur áhuga á að styðja við aðra sem eru í sömu aðstæðum og þú ert í eða hefur verið í, sem einstaklingur með sjúkdóm eða aðstandandi slíks einstaklings, skráðu þig þá hér: http://studningsnet.is/studningsfulltruar/
The post Námskeið fyrir stuðningsfulltrúa (Stuðningsnet sjúklingafélaganna) appeared first on diabetes.