Vorferð!!! við förum laugardaginn 26.maí
Okkar árlega og vinsæla vorferð verður að þessu sinni farin laugardaginn 26.maí.
Við gerum ráð fyrir að leggja af stað um kl.10 og vera komin aftur milli kl. 15 og 16.
Förum á Hvolsvöll og skoðum nýja safnið þar Lava Centre: https://lavacentre.is
Þar munum við einnig borða hádegisverð.
Eins og í fyrra verða félagar úr LAUF með okkur.
Verðið er það sama og í fyrra, kr. 2000 á mann en ókeypis fyrir börn yngri en 12 ára.
Skráning í netfang: diabetes@diabetes.is í síðasta lagi á hádegi þriðjudaginn 22.maí.
The post Vorferð!!! við förum laugardaginn 26.maí appeared first on diabetes.