Útifundur 24. nóvember
Ágætu félagar!
ÖBÍ ásamt BSRB, Landsamtökunum Þroskahjálp og Félagi eldri borgara í Reykjavík munu standa fyrir útifundi mánudaginn 24. nóvember á Ingólfstorgi, sem mun hefjast kl. 16:30 með tónlistarflutningi. Gert er ráð fyrir að ræðuhöld hefjist 16:45 og að fundurinn verði búinn kl. 17:30. Yfirskrift fundarins er „Verjum velferðina.“ Ræðumenn eru eftirtaldir: Gerður A. Árnadóttir, formaður Þroskahjálpar, Halldór Sævar Guðbergsson, formaður ÖBÍ, Margrét Margeirsdóttir, formaður eldri borgara og Árni Stefán Jónsson, formaður SFR og varaformaður BSRB, í lok fundarins verður borin upp ályktun.
The post Útifundur 24. nóvember appeared first on diabetes.