Starfshópur um foreldragreiðslur
Snemma árs 2015 skipaði félags- og húsnæðismálaráðherra starfshóp um umönnunargreiðslur og greiðslur til foreldra langveikra eða fatlaðra barna (Starfshópurinn). Starfshópurinn skilaði af sér áfangaskýrslu undir lok árs 2017, sem nú er aðgengileg á samráðsgátt stjórnarráðsins ( https://samradsgatt.island.is/oll-mal/$Cases/Details/?id=12 ).
Núverandi félags- og jafnréttismálaráðherra hefur falið starfshópnum að ljúka verkinu og skila lokaskýrslu í júní 2018. Starfshópurinn hefur hafið vinnu við lokaskýrslu og telur mikilvægt á þessum tímapunkti að fá innlegg frá sem flestum hagsmunaaðilum og óskar því eftir athugasemdum við áfangaskýrsluna. Sér í lagi er óskað eftir:
- Efnislegum athugasemdum við innihald áfangaskýrslu.
- Ábendingum um atriði sem eru óljós eða þarfnast nánari útskýringa.
- Ábendingum um mikilvæg atriði tengd viðfangsefninu sem ekki er fjallað um í skýrslunni.
Vinsamlegast sendið athugasemdir í gegnum ofangreinda samráðsgátt.
The post Starfshópur um foreldragreiðslur appeared first on diabetes.