Opið hús á nýju skrifstofunum
Opið hús á nýju skrifstofunni!!! Við erum flutt í nýtt húsnæði ásamt sambýlingum okkar. Vorum áður í Hátúni 10b, uppi á 9.hæð (austasti hluti hússins) – en erum núna komin í Hátún 10, á jarðhæð (vestasti hluti hússins). Af því tilefni ætla Samtök sykursjúkra ásamt LAUF – félagi flogaveikra, Tourette-samtökunum og Félagi nýrnasjúkra að bjóða félagsmönnum sínum að koma og skoða nýju húsakynnin. Opið hús verður á nýja staðnum fimmtudaginn 11.júni kl.16-18. Félagsmenn endilega komið í heimsókn og sjáið hvað er orðið fínt hjá okkur!
The post Opið hús á nýju skrifstofunum appeared first on diabetes.