Ókeypis námskeið í markmiðasetningu
Er eitthvað sem þig langar til að gera…en kemur því ekki í verk? Þá er þetta kannski eitthvað fyrir þig ! Þekkingarmiðstöð Sjálfsbjargar heldur frítt námskeið í markmiðasetningu í október. Katrín Björk, sálfræðingur og starfsmaður Þekkingarmiðstöðvar, mun halda námskeiðið. Námskeiðið er í tvo klukkutíma og er hægt að velja um þrjár dagsetningar 22. október, kl. 10-12 23. október, kl. 17-19 28. október, kl. 13-15 Á námskeiðinu verður farið yfir helstu atriðin í markmiðasetningu, m.a. hvernig hægt er að setja sér gott markmið og unnið markvisst að því að ná því. Litlir hópar verða á hverju námskeiði. Námskeiðið er ókeypis. Skráning sendist á netfangið radgjafi@thekkingarmidstod.is
The post Ókeypis námskeið í markmiðasetningu appeared first on diabetes.