Nýjar reglur um strimla fyrir þá sem nota sírita/nema
Heilbrigðisráðuneytið hefur fallist á að breyta reglugerð um styrki vegna hjálpartækja nr. 1155/2013 á þann veg að heimild fyrir blóðstrimla og blóðhnífa hefur verður rýmkuð fyrir einstaklinga sem nota sírita/nema.
Heimildir verða eftirfarandi:
- Börn með sírita/nema fá 2500 blóðstrimla og blóðhnífa
- Fullorðnir með sírita/nema fá 2000 blóðstrimla og blóðhnífa
Reglugerðardrögin fóru til ráðherra í gær, vonandi fáum við undirritun sem fyrst en síðan tekur 10 virka daga að fá birtingu í Stjórnartíðindum.
SÍ mun breyta innkaupaheimildum í samræmi við þetta.
The post Nýjar reglur um strimla fyrir þá sem nota sírita/nema appeared first on diabetes.