Málþing um kjör lífeyrisþega
Bætum kjör lífeyrisþega – málþing málefnahóps ÖBÍ um kjaramál
Málefnahópur ÖBÍ um kjaramál minnir á málþing sitt á Grand Hótel, miðvikudaginn 1. nóvember 2017 kl. 13-17 undir yfirskriftinni „Bætum kjör lífeyrisþega.“ Dagskrá málþingsins liggur nú fyrir.
Tími: Miðvikudagurinn 1. nóvember 2017 kl. 13-17
Staður: Grand hótel – Sigtúni 38 – 105 Reykjavík
Rætt verður um kjör lífeyrisþega frá ýmsum sjónarhornum.
Dagskrá
Ávarp : Þuríður Harpa Sigurðardóttir, formaður ÖBÍ.
Skuldir – áhrif og úrlausnir: Ingunn Árnadóttir félagsráðgjafi hjá Umboðsmanni skuldara
Bætum kjör lífeyrisþega: Staðan og nokkrar tillögur að leiðum: María Óskarsdóttir málefnahópi ÖBÍ um kjaramál.
Galið kerfi: Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR.
Örinnlegg frá örorkulífeyrisþegum: Ágústa Dröfn Guðmundsdóttir og Bára Halldórsdóttir
Nýkjörnum þingmönnum boðið að svara spurningunni: Hvað ætlar þinn þingflokkur að gera til að bæta kjör lífeyrisþega á kjörtímabilinu og hvenær?
Pallborðsumræður.
Lokaorð : Rósa María Hjörvar, málefnahópi ÖBÍ um kjaramál.
Fundarstjóri er Sigmundur Ernir Rúnarsson, fjölmiðlamaður.
The post Málþing um kjör lífeyrisþega appeared first on diabetes.