Gönguferðir
Samtökinn vekja athygli á því að gönguferðirnar eru komnar á vetrartíma það er að annan hvern sunnudag kl. 13:00. Upplýsingar um gönguferðir má nálgast á vefnum undir liðnum Gönguferðir
Næsta sunnudag 25.september verður gönguferð kl 13:00 og mun Birgitta Spur safnstjóri í listasafni Sigurjóns Ólafssonar leiða gönguna og veita upplýsingar um markverða staði á tanganum.
Endilega fjölmennið og takið með ykkur gesti. Göngurnar taka venjulega um eina klukkustund og eru miðaðar við að fólk þurfi ekki að vera í miklu gönguformi til að geta tekið þátt. Tilvalið fyrir þá sem vilja hitta aðra með sykursýki að mæta og hreyfa líkamann í leiðinni.
The post Gönguferðir appeared first on diabetes.