Fundur í Vestmannaeyjum
Fundaröð Öryrkjabandalags Íslands
Fatlað fólk á tímamótum
Eru mannréttindi virt?
Fundur í Vestmannaeyjum þriðjudaginn 23. ágúst 2011
Yfirfærsla á þjónustu fyrir fatlað fólk frá ríki til sveitarfélaga fór fram um síðustu áramót. Öryrkjabandalag Íslands (ÖBÍ) heldur af því tilefni fræðslu- og umræðufundi víðs vegar um landið. Næsti fundur verður 23. ágúst í Alþýðuhúsinu í Vestmannaeyjum kl. 15.30-18.00.
Efni fundar:
- Ný hugmyndafræði um fötlun og Samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Helga Baldvinsd. Bjargardóttir – Fötlunarfræði HÍ
- Er breytinga að vænta? Hrefna K. Óskarsdóttir – ÖBÍ
- Þekkingarmiðstöð Sjálfsbjargar. Ingibjörg Loftsdóttir – Sjálfsbjörg.
- Viðbrögð ÖBÍ vegna yfirfærslunnar. Guðmundur Magnússon – formaður ÖBÍ
- Umræður og fyrirspurnir.
Fatlað fólk, aðstandendur, starfsfólk og stjórnendur sem vinna að málefnum fatlaðs fólks og aðrir sem áhuga hafa á málefninu eru velkomnir.
Réttindagæslumaður fatlaðs fólks mætir á fundinn.
Mætum öll
Ekkert um okkur án okkar
The post Fundur í Vestmannaeyjum appeared first on diabetes.