Fræðslufundur – Mikilvægi hreyfingar fyirr langveika
Félag nýrnasjúkra, Parkinsonsamtökin á Íslandi og Samtök
sykursjúkra halda sameiginlegan fræðslufund um gildi
hreyfingar og þjálfunar fyrir langveika fimmtudaginn 29. apríl
nk. kl. 20:00. Fundurinn er öllum opinn og hvetjum við alla
félagsmenn til að mæta og taka með sér gesti. Bein útsending
verður frá fundinum þar sem félögin hafa tengiliði.
Fyrirlesarar eru:
Ólafur Skúli Indriðason, nýrnalæknir
Jóna Hildur Bjarnadóttir, íþróttafræðingur hjá ÍSÍ
Fundurinn er haldinn í húsakynnum Háskóla Íslands, Öskju
Sturlugötu 7 (við hliðina á Norrænahúsinu) í sal 132
Nánari upplýsingar varðandi fundarstaði um landið munu birtast
á heimasíðum samtakanna.
Eftirtalin bæjarfélög verða með útsendingar:
Selfoss
Vestmannaeyjar
Hornafjörður
Egilsstaðir
Grímsey
Akureyri
Sauðárkrókur
Ísafjörður
Akranes
Reykjanesbær
The post Fræðslufundur – Mikilvægi hreyfingar fyirr langveika appeared first on diabetes.