10 Street Name, City Name
Country, Zip Code
562-5605
mymail@mailservice.com
LSH – Ályktun vegna ástandsins á Landspítala – háskólasjúkrahúsi Fulltrúar neðangreindra samtaka mótmæla harðlega þeirri lækkun til reksturs Landspítala – háskólasjúkrahúss sem birtist í fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar fyrir næsta ár. Um er að ræða niðurskurð sem kann að valda ómældum kostnaði fyrir spítalann og alla sem njóta þjónustu hans og þess öryggis sem því fylgir að hafa aðgang að sérhæfðri heilbrigðisþjónustu. Við blasir að það rekstrarfé sem gert er ráð fyrir í fjárlögum muni ekki duga til að Landspítalinn – háskólasjúkrahús geti veitt þá þjónustu sem lög kveða á um. Til að Ísland geti talist velferðarríki verður heilbrigðisþjónusta landsins að standast þær kröfur sem gerðar eru til sjúkrahúsa á Norðurlöndum. Aðbúnaður starfsfólks Landspítala hefur í sumum tilvikum verið heilsuspillandi. Til að reyna að draga úr leka og sinna nauðsynlegu viðhaldi á húsnæði hefur reynst óhjákvæmilegt að sækja viðhaldsfé að hluta í rekstrarfé spítalans sem þrengir þá enn frekar að starfseminni. Slíkt getur ekki gengið lengur þar eð sérhæft starfsfólk mun þá leita annað auk þess sem sérfræðilæknar skila sér ekki heim að loknu námi erlendis. Iðulega hefur nýting legudeilda farið yfir 100% en æskilegt er að þetta hlutfall sé ekki hærra en 80%. Á þessum álagstímum verður æ erfiðara fyrir starfsfólk spítalans að sinna sjúklingum eins og best væri á kosið. Einnig fjölgar þá gangainnlögnum sem óhjákvæmilega eykur smithættu. Þegar slíkar aðstæður verða viðvarandi dregur enn úr möguleikum spítalans til að keppa við önnur lönd um sérhæft starfsfólk. Ekki síst nú á tímum hættulegra farsótta. Önnur meginkrafa er að Landspítalinn standi undir nafni sem háskólasjúkrahús. Að öðrum kosti munu gæði menntunar fyrir nema í læknisfræði, hjúkrunarfræði og öðrum heilbrigðisgreinum versna og þetta unga fólk mun þá enn frekar leita utan til að afla sér tilhlýðilegrar menntunar. Frá árinu 2000 má segja að Landspítalinn hafi nær árlega verið í spennitreyju við fjárlagagerð. Áhrif hrunsins árið 2008 þekkja svo allir. Landspítalinn tók á sig gríðarlegan sparnað í rekstri og sparaði 40 milljarða á fimm árum eða sem nemur einu rekstrarári. Fjárlög ársins 2014 fólu í sér nokkurn varnarsigur fyrir spítalann og þá sem þurfa á þjónustu hans að halda. Sú von um viðsnúning sem þá vaknaði mun reynast skammvinn verði Landspítalinn enn að taka á sig skerðingu á framlögum á næsta ári. Embætti landlæknis, sem lögum samkvæmt hefur eftirlit með því að þjónusta Landsspítalans standist lög og reglugerðir, hefur í tvígang birt skýrslur þar sem fram kemur afleit staða húsnæðismála á geðdeild (2013) og húsnæðis- og mannauðsmála á lyflækningasviði, stærsta sviði spítalans (2014). Einungis 4% salerna á spítalanum standast byggingareglugerð og enn þurfa 4-6 sjúklingar víða að liggja saman á stofum og deila salerni. Slík staða eykur enn frekar sýkingarhættu, bæði fyrir sjúklinga og starfsfólk, og er líkt og innlagnir sjúklinga á ganga með öllu óviðunandi. Undirrituð samtök skora á ríkisstjórn, fjárlaganefnd og Alþingi að gera nauðsynlegar breytingar á fjárlagafrumvarpinu til að tryggja að umhverfi sjúklinga, aðstaða starfsfólks og nema standist bæði lög og þann metnað sem íslensk þjóð vill sýna. ADHD samtökin Astma- og ofnæmisfélag Íslands Brjóstaheill-Samhjálp kvenna CCU, Crohn´s og Colitis Ulcerosa samtökin Einhverfusamtökin Einstök börn FAAS (Alzheimer) Félag CP á Íslandi Félag áhugafólks um Downs heilkenni Félag eldri borgara í Reykjavík Félag lesblindra á Íslandi Félag lifrarsjúkra Félag nýrnasjúkra Geðhjálp Geðvernd Gigtarfélag Íslands HIV-Ísland Hjartaheill – Landssamtök hjartasjúklinga Hjartavernd Hugarafl Hugarfar Kraftur Krabbameinsfélag Íslands Landssamtökin Þroskahjálp Lauf MG félag Íslands (Myasthenia Gravis) MND félagið á Íslandi MS-félag Íslands Neistinn – styrktarfélag hjartveikra barna Ný rödd Parkinsonsamtökin á Íslandi Samtök lungnasjúklinga Samtök sykursjúkra SÍBS Sjálfsbjörg Landssamband fatlaðra SPOEX (Psoriasis) Stómasamtökin Styrktarfélag krabbameinssjúkra barna Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra Styrkur Tilvera, samtök um ófrjósemi við listann Tourette-samtökin á Íslandi Umhyggja – félag til stuðnings langveikum börnum Vífill Öryrkjabandalag Íslands
The post Yfirlýsing vegna LSH appeared first on diabetes.
10 Street Name,
City Name Country, Zip Code
562-5605
mymail@mailservice.com
Sigtúni 42, 105 Reykjavík
Sími: 562-5605
Netfang: diabetes@diabetes.is
Styrktarreikningur: 0303-26-033354,
kennitala: 681174-0609
Skrifstofa félagsins er opin þriðjudaga og fimmtudaga frá klukkan 10 til 12.