Alþjóðadagur sykursjúkra
Alþjóðadagur sykursjúkra er 14. nóvember ár hvert. Af því tilefni voru Samtök sykursjúkra með kynningu á félaginu og buðu upp á fríar blóðsykursmælingar í Smáralindinni, Hagkaups megin, laugardaginn 18. nóvember.
Dropinn, foreldrafélag sykursjúkra barna og unglinga, mætti einnig og hjálpaði okkur við mælingarnar.
Mældum við blóðsykur allra sem þess óskuðu frá klukkan 12-17.00. Reyndar urðum við að hætta hálftíma fyrr vegna þess að við kláruðum strimlana sem við notum við blóðsykursmælingarnar.
Við mældum um það bil 1200 einstaklinga yfir daginn, einhverjir einstaklingar mældust full háir í blóðsykri og var bent á að leita til læknis og fá frekar úr því skorið hvort þeir væru með sykursýki eða ekki.
Viltu lesa meira? |
 |
Þess má geta að það mættu einstaklingar á öllum aldri til þess að láta mæla sig. Skemmtilegt dæmi var ein lítil stúlka um það bil 3 ára sem rétti mér putta og óskaði þess að láta mæla sig. Ég leit á foreldra hennar og síðan aftur á hana og spurði hvort hún væri alveg viss, það kæmi smá blóð.
Litlu augun hvikuðu hvergi og óskin stóð enn um mælingu. Verð að segja ég dáist að þessari litlu stúlku fyrir kjarkinn, það voru margir þarna sem ekki voru eins rólegir þegar þeir voru mældir.
Styrktaraðilum þökkum við einnig veittan stuðning, en þeir voru:
Logaland innflytjandi FreeStyle blóðsykursmæla
Vistor innflytjandi Bayer blóðsykursmæla
Lyra innflytjandi Accu-Check blóðsykursmæla
Smáralind í Kópavogi
f.h. Samtaka sykursjúkra
Kim Mortensen