A A A
Skráðu netfangið þitt og fáðu tilkynningar sendar í tölvupósti
Nafn
Afskrá
Ágúst - 1315607415
S M Þ M F F L
28 29 30 31 1 2 3
4 5 6 7 8 9 10
11 12 13 14 15 16 17
18 19 20 21 22 23 24
25 26 27 28 29 30 31
<
>

Haustferð í Veiðivötn 2004

Laugardaginn 18. september kl. 8.30 hittist hópur fólks við Hátún 10b, sem ætlaði að fara í ferðalag með Samtökum sykursjúkra upp í Veiðivötn á Landmanna afrétti. Þarna var saman kominn 61 einstaklingur, sykursjúkir, makar, börn og vinir, en allir voru velkomnir með. 

Veðrið var nokkuð óljóst, nýbúið að ganga yfir illviðri fyrr í vikunni spáin var samt jákvæð, lofaði þurru.

Lagt af stað kl. 8.30 stundvíslega, buðum alla velkomna og fólum síðan Hákoni Óskarssyni leiðsögn í ferðinni. Leiðin lá nú beint úr bænum og var fyrsta stopp á Selfossi, eða "tæknistopp" eins og leiðsögumaðurinn okkar kallaði það. Eftir því sem austar dró þá létti meira til og allt útlit fyrir bjart og gott veður.

Áfram var haldið og næsta stopp var Hjálparfoss, gengu margir niður að honum. Hákon varpaði fram spurningu sem enginn hafði svar við. Hvernig stendur á nafninu Hjálparfoss? Spurningin nagaði undirritaðan og svarið er: Nafnið Hjálp varð til í munni þeirra, sem komu úr erfiðum ferðum yfir Sprengisand og fundu þar snapir fyrir hestana við fossinn.

Næst lá leiðin inn að Stöng en Þjóðveldisbænum var búið að loka fyrir veturinn, Þjóðveldisbærinn var byggður 1974-77 með Stöng sem fyrirmynd. Stöng var grafinn upp úr ösku um og eftir 1939, en talið er að bærinn hafi farið í eyði árið 1104 ásamt fjölda annarra bæja í dalnum, nú er Stöng yfirbyggð til að varðveita uppgröftinn.

Frá Stöng var nú lagt á brattann og keyrt inn að Hálendismiðstöðinni Hrauneyjum sem er veitinga og gistihús á hálendi Íslands. Þarna beið okkar léttur málsverður með þarfir sykursjúkra að leiðarljósi, einhverjar raddir voru uppi um að þetta væri nú ekki stór máltíð, dæmi hver fyrir sig.

Athyglisverð voru nöfnin á herbergjum staðarins nefnd eftir veðri, vindum og skýjafari t.d. Rigning, Úrhelli, Fárviðri, Rok, Snjómugga, Klósigar, Hnoðrar og þar fram eftir götunum. Svefnherbergja gangarnir heita síðan Éljagangur, Gauragangur og Vindgangur. Betri veitingasalurinn heitir Veðravíti. Tekið smá "tæknistopp" og síðan lagt af stað inn í Veiðivötn.

Keyrt framhjá Vatnsfellsvirkjun sem er nýjasta mannvirkið á svæðinu. Þessi leið ruglaði bæði undirritaðan og Hákon leiðsögumann í rýminu því að hvorugur hafði farið þessa leið áður inn í Veiðivötn, allt í einu birtist Þóristindur löngu áður en reiknað hafði verið með og ekki ókum við yfir affallið úr Þórisvatni sem er ansi hrikalegt. Þetta stytti leiðina talsvert. Ekið um tóma sanda og ekki stingandi strá að sjá svo langt sem augað eygði.

Ekið yfir Vatnakvíslina sem er ekki mjög djúp en getur verið erfið fólksbílum. Ekið upp á Miðmorgunöldu ofan við Litla Fossvatn, góður útsýnisstaður.Veðrið gat ekki verið betra logn og glampandi sól. Landslagið, því verður ekki lýst í svona stuttum pistli, eitt orð yfir það stórkostlegt. Útsýnisskífa sem er þarna var einnig góð hjálp til að fullvissa sig um nöfn á fjöllum og vötnum. Næst lá leið niður að sæluhúsinu sem stendur við Tjaldvatn og auðvitað tekið gott "tæknistopp"

Veiðivötn eru eins og nafnið gefur til kynna góð veiðivötn og hefur síðustu ár veiðst um það bil 7-10 þúsund fiskar á sumri, þar af 60% urriði en 40% bleikja. Vötnin eru um það bil 50, flest eru þetta gamlir gjóskugígar frá Veiðivatnagosinu1480. Gjóskulagið er mjög þykkt á köflum allt að 10-12 metra þykkt í 2-3 km. fjarlægð frá gígunum. Fjölbreytt fuglalíf er á svæðinu 22 tegundir varpfugla og sést hafa 20 tegundir hraknings og flækingsfugla á svæðinu. Þrjár tegundir villtra spendýra finnast á svæðinu, minkur, refur og hagamús.

Næst lá leiðin niður í Galtalæk þar sem átti að slá til grillveislu og njóta kyrrðar skógarins sem þarna er. Leiðin niður í Galtalæk gekk tíðindalaust fyrir sig, utan einn félagsmanna fann til ónota og var rútan stöðvuð meðan blóðsykurinn var mældur og þegar allt reyndist vera í lagi, þá var haldið áfram. Í Galtalæk var kveikt upp í stóru grilli og þeir er vildu fóru í stutta gönguferð um svæðið meðan grillið hitnaði. Veðrið var svo gott að ákveðið var að borða úti á palli.

Maturinn rann ljúft niður með hjálp gosdrykkja sem Vífilfell og Ölgerðin höfðu styrkt okkur með og kunnum við þeim bestu þakkir fyrir. Kaffi var auðvitað hitað fyrir þá sem það vildu. Nú var degi tekið að halla og best að fara að drífa sig heim. Allir hjálpuðust við að taka saman og skilja við staðinn eins og við tókum við honum.

Næsta stopp var aftur á Selfossi, enn eitt "tæknistoppið". Til Reykjavíkur komum við um kl. 21.30 allt eftir áætlun. Þetta var frábært ferðalag og tókst án nokkurra áfalla, samt ekki laust við að stjórnin hefði smá áhyggjur af ábyrgjast svona stóran hóp.

Okkur langar til að þakka öllum þeim sem styrktu okkur með meðlæti eða á einn eða annan hátt kærlega fyrir. Hákon leiðsögumaður á okkar bestu þakkir fyrir að fylla upp í gloppurnar hjá okkur með leiðsögn sinni. Guðmundur bílstjóri á líka bestu þakkir fyrir þægilegan akstur.

Styrktaraðilar voru:




Hópferðamiðstöðin
Ölgerin Egill Skallagrímsson
Vífilfell
 Kjötsmiðjan
 Veislu þjónusta Guðna og Dóru


Samferðafólki okkar þökkum við auðvitað fyrir samfylgnina og sjáumst að ári.

Kim Mortensen

Sykursýki - sjúkdómur 21. aldarinnar

Fræðslumyndband

 

______________________