A A A
Skráðu netfangið þitt og fáðu tilkynningar sendar í tölvupósti
Nafn
Afskrá
Ágúst - 1315607415
S M Þ M F F L
28 29 30 31 1 2 3
4 5 6 7 8 9 10
11 12 13 14 15 16 17
18 19 20 21 22 23 24
25 26 27 28 29 30 31
<
>

Samtök sykursjúkra voru stofnuð 25. nóvember 1971. 

Slík samtök hafa verið starfandi víða um heim um áratuga skeið unnið sykursjúkum ómetanlegt gagn. 

Samtökin eru aðilar að Norrænu og alþjóðlegu samstarfi. 

Tilgangur samtakanna er samkvæmt lögum þeirra: 

1. Halda uppi fræðslu um sykursýki
2. Vinna að því að komið verði á fót sérhæfðri lækningastöð fyrir sykursjúka með sérmentuðu starfsliði.
3. Bæta félagslega aðstöðu sykursjúkra 


Allir þeir sem eru sykursjúkir geta orðið félagar, aðstandendur og áhugafólk um sykursýki. Samtökin gefa út tímaritið Jafnvægi sem er fræðslurit með greinum og fréttum. 

Einnig eru gefnir út fræðslubæklingar um sykursýki og haldnir fræðslufundir. 

Samtökin afla fjár til rekstarins með félagsgjöldum, styrkjum, sölu minningar og jólakorta. 

Nánari upplýsingar veita:

Samtök sykursjúkra,
Hátúni 10 b,
105 Reykjavík,
Sími : 562-5605
Fax : 562-5715
Netfang : diabetes@diabetes.is
Veffang : www.diabetes.is  

Skrifstofa samtakanna er opin þriðjudaga og fimmtudaga klukkan 10-12.

Fólk er hvatt til að skilja eftir skilaboð á símsvara samtakanna eða senda tölvupóst utan þess tíma.

Sykursýki - sjúkdómur 21. aldarinnar

Fræðslumyndband

 

______________________